Skoðun

„Al­mennings“ sam­göngur?

Bragi Gunnlaugsson skrifar

Í viðtali á Rás 2 sagði Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli, að almenningssamgöngurnar sem þangað liggja, vera fyrst og fremst fyrir starfsfólk vallarins. Keflavíkurflugvöllur hlýtur þá að vera eini alþjóðaflugvöllurinn í heimi þar sem almenningssamgöngur eru ekki hugsaðar fyrir viðskiptavinina.

Þessi skortur á grunnþjónustu fyrir farþega er ekki einungis bagalegur fyrir þau sem vilja komast á einfaldan og bíllausan hátt í millilandaflug, heldur ótrúlega slæm (og neyðarleg fyrir okkur sem þjóð) fyrsta upplifun þeirra sem heimsækja okkur. Eins og Þjóðverjarnir sem voru samferða mér úr flugi um daginn sögðu þegar þeir fundu engar samgöngur af vellinum: „That can‘t be right.“ Þeir eru eðlilega vanir því að á flugvöllum séu risastór skilti sem benda á almenningssamgöngur í borgina – því það er ekki eins og ferðalaginu ljúki á flugvellinum.

Í fjöldamörg ár hefur verið kallað eftir endurbótum og nútímavæðingu samgangna á flugvöllinn. Raunar lofaði fyrrverandi innviðaráðherra að málin yrðu skoðuð fyrir sumarið. Í fyrra. Ekkert bólar á tillögum og orð Guðmundar setja vissulega tóninn af hverju svo er.

Samtök um bíllausan lífsstíl kalla eftir því að samtalið um almenningssamgöngur á Keflavíkurflugvöll sé tekið alvarlega. Það þarf engin að finna upp hjólið í þessum málum – einungis hugrekkið til að bjóða upp á þessa lágmarksþjónustu sem svo mörg kalla eftir.

Höfundur er formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×